Í þáttunum er rætt við skólastýrur, kennara, foreldra og aðra góða gesti sem veita góð ráð sem nýtast heima fyrir.
#10 Jólin: Að velja einfaldleikann
Jólin eru að nálgast og öll viljum við skapa gleðileg jól. Í þessum þætti fylgjum við eftir hugvekjunni okkar, Að velja einfaldleikann, og hvernig við getum skapað aðstæður til að líða vel á þessum tímum. Við ræðum galdurinn í einfaldleikanum og valdeflinguna sem felst í því að við höfum alltaf val. Þó valið sé stundum einungis um viðbrögð okkar. Þær Arna og Jensa á Laufásborg eru vinkonur þáttarins. Þær ræða gamlar og nýjar hefðir og mikilvægi þess að leyfa jólunum að þróast með kynslóðum. Nú er tíminn til þess að æfa sig í að taka meðvitað val um það sem við veljum inn í líf okkar og spyrja áleitinna spurninga. „Er þetta að þjóna mér og minni fjölskyldu?“ Markmið okkar í Hjallastefnunni er ávallt að valdefla foreldra í uppeldinu og að vera stuðiningur svo að þeim gangi betur í sínu mikilvæga hlutverki. Þú ert sérfræðingur í þínu barni og veist hvað er best fyrir þig og þína fjölskyldu. Nú sem aldrei fyrr dynja ráðleggingar úr öllum áttum sem segir okkur að við erum öll að leita jafnvægis. Þar liggur svarið hjá hverju og einu okkar, hvernig við finnum leið til að skapa vellíðan, sátt og gleði. Kæru hlustendur við vonum að þið njótið þáttarins og gleðilega hátíð.
#1 Röð, regla og rútína
Jensína Edda Hermannsdóttir er vinkona þáttarins og ræðir við okkur um mikilvægi röð, reglu og rútínu og hvernig hægt sé að nýta hugmyndafræði Hjallastefnustefnunnar heima fyrir. Jensína er skólastýra á Laufásborg og býr yfir 20 ára reynslu í starfi með börnum. Hún deilir allskyns fróðleik og heilandi skilaboðum til foreldra á þessum krefjandi tímum. Sömuleiðis heyrum við í framkvæmdastjóra Hjallastefnunnar, Þórdísi Jónu Sigurðardóttur, en hún segir okkur frá Hjallastefnunni og þeirri ákvörðun að hefja hlaðvarp.